%20(3).png?width=2000&height=666&name=Sala%20og%20s%C3%BDnileiki%20%C3%AD%20fer%C3%B0a%C3%BEj%C3%B3nustu%20-%20fr%C3%A6%C3%B0slufundir%20%C3%AD%20heimabygg%C3%B0%20(1200%20x%20400%20px)%20(3).png)
Dagana 4.–8. maí munu ferðatæknifyrirtækin Godo og Keeps taka höndum saman og standa fyrir fræðsluviðburðum víðs vegar um landið fyrir aðila í ferðaþjónustu.
Þema viðburðanna er sala og sýnileiki, með áherslu á einfaldar og hagnýtar leiðir til að ná betri árangri.
Á fundunum munum við meðal annars fara yfir:
- hvernig hægt er að auka beinar bókanir
- hvernig þú getur styrkt sýnileika þinn og náð til fleiri viðskiptavina
- hvað er að skila árangri í dag hjá fyrirtækjum í greininni
Fundirnir eru sérstaklega ætlaðir eigendum og rekstraraðilum í ferðaþjónustu sem vilja fá hugmyndir, ráð og innsýn sem nýtast í daglegum rekstri.
Hver fundur er um 1,5 klukkustundir:
- 30–40 mínútur af erindum
- opnar umræður, spurningar og tengslamyndun í lokin
Markmiðið er einfalt: að þú farir heim með að minnsta kosti eina hugmynd sem þú getur nýtt strax.
Fundirnir eru ókeypis og opnir öllum áhugasömum í ferðaþjónustu.
Skráning nauðsynleg
Fróðleg erindi frá reynsluboltum í ferðaþjónustu

Byggjum rekstur á góðum tekjum
Sverrir Steinn Sverrisson -Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá GODO
Hvaðan bókanirnar þínar koma og hvernig þú vinnur með þær hefur bein áhrif á framlegð, stjórn og fjárhagslega sjálfbærni til lengri tíma.
Í erindinu fjallar Sverrir um hvernig hægt er að byggja upp heilbrigðari tekjuvöxt: jafnvægið milli beinna bókana, bókana frá sölusíðum (OTA) og B2B-bókana, og hvernig bókunarvélin þín getur stutt við aukna beina sölu.
Um Sverri:
Sverrir er annar stofnenda og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá GODO. Sverrir er með yfir 15 ára reynslu af tækni í ferðaþjónustu. Hann hefur rekið hótel og ferðaþjónustufyrirtæki og hefur því beinan skilning á þeim áskorunum sem fyrirtæki í ferðaþjónustu standa frammi fyrir daglega, þar á meðal sölu, dreifingu, væntingum viðskiptavina og breytingum á markaði.
Sýnileiki sem selur
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir - Framkvæmdastjóri Keeps
Áður en ferðamenn bóka hjá þér skoða þeir sölusíður, samfélagsmiðla og vefsíðu - bæði hjá þér og samkeppnisaðilum. Þú hefur fáeinar sekúndur til að vinna þá á þitt band og þar ræður efnið þitt úrslitum.
Í erindinu fjallar Guðrún um hvernig þú tryggir að ferðamenn velji þig fram yfir samkeppnina, með því að sýna rétta efnið á réttum stöðum og hvernig þú getur fengið hvern miðil til að vinna betur fyrir fyrirtækið þitt.
Um Guðrúnu:
Guðrún er stofnandi og framkvæmdastjóri Keeps. Guðrún er með víðtæka reynslu í ferðaþjónustu en áður en hún stofnaði Keeps vann hún hjá Hertz bílaleigu, Expedia og Guide to Iceland.
.png?width=1491&height=2000&name=Untitled%20design%20(92).png)
Dagskrá og viðkomustaðir
📍 Hella – 4. maí
10:00 – 11:30 · Stracta Hótel
📍 Vík – 4. maí
13:00 – 14:30 · Hótel Katla
📍 Höfn – 5. maí
10:00 – 11:30 · Heppa Restaurant
📍 Egilsstaðir – 5. maí
14:30 – 16:00 · Gisthúsið Egilsstöðum
📍 Mývatnssveit – 6. maí
10:00 – 11:30 á Sel-Hótel Mývatn
📍 Akureyri – 6. maí
13:30 – 15:00 · Elding Hvalaskoðun
📍 Búðardalur – 7. maí
10:00 – 11:30 · Dalahótel
📍 Ísafjörður – 8. maí
10:00 – 11:30 · Dokkan Brewery
.png)